MANNGERÐIR

Laugardaginn 25. febrúar opnar í Gallerí Ágúst einkasýning Ragnars  Þórissonar. Ragnar (f.1977) býr og starfar í Reykjavík. Hann nam við Myndlistaskóla Reykjavíkur 2006-2007 og útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands vorið 2010 og hefur síðan unnið að myndlist sinni og aðallega sinnt málverkinu.  Hann tók þátt í sýningunni Sýnilegt myrkur í Hugmyndahúsi HÍ árið 2010 en sýningin MANNGERÐIR í Gallerí Ágúst er fyrsta einkasýning hans. Undanfarin misseri hefur hann unnið að sköpun þeirra málverka sem eru á sýningunni. Ragnar vinnur með hefðbundið efni listmálarans, notar olíumálningu á striga og málar gjarnan stóra fleti. Litanotkun hans er dulúðug og dregur áhorfandann að málverkunum, nær persónunum sem lifa í þeim.

Þóra Þórisdóttir listamaður og listfræðingur segir um verk Ragnars: Málverk Ragnars Þórissonar sýna áleitnar mannverur í undarlegu og annarlegu umhverfi. Áferð myndanna og efnistök minna stundum á verk tilvistarlistamannanna á miðri síðustu öld en leiða ekki síður hugann að tilvistarkreppu samtímans, firringu mannsins og súrri náttúru.

Verið velkomin á opnun sýningarinnar laugardaginn 25. febrúar kl. 16.00.