Fyrirlestur Guðrúnar Kristjánsdóttur um vegglistaverkið Múrinn í Peking
November 28th, 2011Guðrún Kristjánsdóttir heldur fyrirlestur í Gallerí Ágúst laugardaginn 3. desember kl. 16.00.
Nýlega vann listakonan Guðrún Kristjánsdóttir að stóru útilistaverki í Peking í Kína, ásamt sex listnemum úr Listakademíu Pekingborgar. Verkið nefnist Múrinn (The Wall) og er gert úr íslenskri eldfjallaösku og kínverskum glerbrotum. Er hann hluti af NOTCH11 listahátíðinni í Peking sem er samnorræn-kínversk menningarhátíð á sviði lista og hönnunar. Guðrúnu var boðið að taka þátt í hátíðinni í kjölfar vel heppnaðrar innsetningar hennar í lista- og hönnunarhverfi Pekingborgar á síðasta ári. Þema hátíðarinnar að þessu sinni var skapandi endurvinnsla / viðbragð.
Múrinn er unninn með ösku annarsvegar sem tákn um úrgangsefni af náttúrunnar hendi og gleri hinsvegar sem úrgangsefni nútímasamfélaga. Askan úr nýlegu eldgosi á Íslandi en glerið úr hverfinu sem verkið er sett upp í. Á múrvegg rétt sunnan við Torg hins himneska friðar mynda nú glerbrotin bráðnandi og sindrandi snjóform í svartri öskuhlíð.
Mikil vinna lá að baki uppsetningu verksins og ýmsar hindranir mættu Guðrúnu þegar komið var á staðinn. Hún kynntist framúrskarandi nemendum akademíunnar og hélt fyrirlestra og fræðslu fyrir þá. Verkið hefur vakið gríðarlega mikla athygli og mun standa um ókomna framtíð á þessum óvenjulega stað í miðborg Peking.
Laugardaginn 3. desember kl. 16.00 ætlar Guðrún að halda fyrirlestur um aðdraganda, undirbúning og vinnu við uppsetningu listaverksins, sýna myndir og koma með sýnishorn af efninu sem notað var í verkið. Allir eru hjartanlega velkomnir í Gallerí Ágúst að heyra af þessu mikla ævintýri listakonunnar í Kína.




