Harpa Dögg sýnir í Luxembourg
April 27th, 2012Harpa Dögg Kjartansdóttir tekur nú þátt í sýningu í Bergman Berglind Contemporary Art í Luxembourg en samsýning þriggja listamanna opnar þar laugardaginn 28. apríl kl. 17. Listamennirnir eru Harpa Dögg Kjartansdóttir frá Reykjavík, Thomas Lucker frá Berlín og Alexander Adams frá Englandi en hann býr og starfar í Berlín. Bergman Berglind er metnaðarfullt ungt gallerí sem sýnir verk eftir unga og upprennandi listamenn í alþjóðlegu samhengi. Galleríið er í samstarfi við Gallery Helga Maria Bischoff í Berlin. Stofnendur gallerísins eru þau Michael Bergman frá Svíþjóð og Berglind Sigurðardóttir frá Íslandi en þau hafa búið og starfað í Lúxemborg í 12 ár.
Harpa Dögg Kjartansdóttir (f. 1982) útskrifaðist frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2007 og lauk kennsluréttindum frá sama skóla vorið 2009. Hún hefur verið virk í listsköpun sinni og tekið þátt í fjölda sýninga víða um land og erlendis. Hún hefur bæði haft frumkvæði að því að skipuleggja sýningar og tekið þátt í sýningum sem henni hefur verið boðin þátttaka í, auk þess sem hún hefur einnig unnið að sýningarstjórnun og leikmyndahönnun.
Harpa Dögg sýndi verk sín í Gallerí Ágúst vorið 2011 ásamt Ragnhildi Jóhannsdóttur og á sumarsýningu gallerísins sama ár. Hér má nálgast nánari upplýsingar um Hörpu Dögg.
Hér má sjá nánari upplýsingar um sýningu Hörpu og Ragnhildar.
