Andrea Maack útskrifaðist frá myndlistadeild Listaháskóla Íslands árið 2005 og hefur síðan verið virk í myndlistarumhverfinu á Íslandi sem erlendis. Í verkum sínum vinnur Andrea gjarnan með hugmyndir um fegurð, tísku, útlitsdýrkun, líkama, heilsu og dauða, hvort sem er í formi teikninga, skúlptúra eða jafnvel ilms. Hún vinnur líka með hefðir tískuiðnaðarins m.a. með því að kynna verkin sín tvisvar á ári (haustlínu og vorlínu) og nota eigið nafn sem n.k. vörumerki. Andrea leitast við að vinna í samstarfi við aðra í listsköpun sinni, hvort sem er arkítekta, fatahönnuði, grafíska hönnuði eða ilmhönnuði sem dæmi.
Sýningar í Gallerí Ágúst: