Sýningar: Einar Garibaldi Eiríksson: Grand Tour / 1998 – 2010
Einar Garibaldi Eiríksson býr og starfar í Reykjavík en hann stundaði myndlistanám við Myndlista – og handíðaskóla Íslands og útskrifaðist frá Accademia di Belle Arti di Brera í Mílanó á Ítalíu árið 1991. Einar hefur haldið nánum tengslum við Ítalíu og sýnir þar reglulega. Hann hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum í hátt í 3 áratugi ásamt því að vera sýningarstjóri og sinna kennslu um árabil. Einar var prófessor við Listaháskóla Íslands á árunum 2000-2008. Verk hans eru í eigu helstu safna landsins ásamt fjölmörgum einkasöfnum. Einar hlaut listamannalaun árið 2009 og nýlega lauk hann tveggja mánaða dvöl við vinnustofuna Kjarvalsstofu í París.