Það má segja að Guðrún Kristjánsdóttir sé þekktust fyrir stór olíumálverk sín en hún hefur unnið þrotlaust að myndlist sinni í hátt í 30 ár. Undanfarin ár hefur Guðrún þróað verk sín áfram í ólíkum miðlum og fangað viðfangsefnið í ljósmyndir, grafík, myndbönd eða á striga. Einnig hefur hún unnið meira og meira staðbundið (site specific) inn í þau rými þar sem hún hefur sýnt og leikið þannig á birtu og skugga jafnt sem auga áhorfandans. Verk hennar eru í eigu helstu liststofnanna, á veggjum margra fyrirtækja og í einkasöfnum. Guðrún Kristjánsdóttir hefur haldið sýningar víða um heim á farsælum ferli sínum og unnið í samstarfi við arkítekta og hönnuði. Á einkasýningu sinni Veðurskrift í Hafnarborg 2009, leitaðist Guðrún við að fanga í form þær kviku myndir, þá slóð sem veður skilur eftir sig á landinu og tengja hana við hrynjandi og stef í gömlum rímnakveðskap. Guðrún sýndi verk sín nýlega í Kína við góðar undirtektir, bæði innsetningar, málverk og prentverk.
Allar nánari upplýsingar um verk og verð fást hjá galleríinu.