Kona og eldur 2008 Ljósmynd 53 x 68.5 cm
Katrín Elvarsdóttir

Katrín Elvarsdóttir (f.1964) er einn af fremstu samtímaljósmyndurum Íslands. Hún lauk tveggja ára ljósmyndanámi við Brevard Community College í Bandaríkjunum árið 1990 og BFA-gráðu í ljósmyndun og myndlist frá Art Institute of Boston árið 1993. Í verkum sínum nær Katrín gjarnan að framkalla dularfulla og jafnvel leikræna stemningu með hárfínni næmni við að fanga margræð augnablik. Hún hefur haldið einkasýningar á verkum sínum bæði á Íslandi, í Bandaríkjunum og Danmörku og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum víða um heim. Nýverið lauk einkasýningu hennar í D-sal Listasafns Reykjavíkur, þar sem hún sýndi innsetninguna Hvergiland.  Hún hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir list sína, s.s. tilnefningu til heiðursverðlauna Myndstefs 2007 og fyrstu verðlaun á sýningunni Camera Works í BNA 2009. Verk eftir Katrínu eru í eigu helstu safna hérlendis. Katrín Elvarsdóttir býr og starfar í Reykjavík.

Vefsíða Katrínar Elvarsdóttur

Equivocal the Sequel / Listahátíð í Reykjavík 2010

Margsaga 2008