Marta María lærði við málaradeild Listaháskóla Íslands og Goldsmiths College í London. Einnig hefur hún numið teiknimynda- og hreyfimyndagerð sem hún notar líka í sinni myndlist. Sem dæmi sýndi hún nýlega hreyfimynda-altaristöflu í samstarfi við Arnald Mána Finnsson, á sýningunni Orð Guðs á Listasafni Akureyrar. Hún myndskreytti og hannaði á síðast ári ljóðabók Sigurbjargar Þrastardóttur, To bleed straight. Málverk hennar eru samsett, lagskipt og tákna hvert sinn heim. Línur og form tengjast og hanga á bláþræði. Það þarf einungis veikan gust til að allt springi í loft upp.