Sigtryggur Berg Sigmarsson

Sigtryggur Berg Sigmarsson (f. 1977) stundaði myndlistarnám í Hannover hjá prófessor Ulrich Eller og lauk meistaragráðu frá Fachhochschule Hannover Bildende Kunst árið 2003. Áður hafði hann stundað nám við Konunglega konservatoríið í Haag á árunum 1997 – 1998.  Sigtryggur hefur sýnt verk sín víða og er jafnframt ötull gjörningamaður og sem slíkur treður hann gjarnan upp í hlutverki hins skjálfandi taugatrekkta listamanns sem virðist berjast við að hemja sköpunargleði sína og finna henni einhvern mótaðan farveg. Með myndilstarsköpun fæst Sigtryggur jöfnum höndum við gerð tónlistar og þá helst með hljómsveitinni Stilluppsteypu sem er kunn fyrir framsækni í hljóðheimi sínum sem rambar á mörkum óhljóða og tónlistar. Af verkum hans í ólíka miðla er hægt að greina samsvörun sem felst í sífelldri leit á mörkum skipulags og ringulreiðar.