EQUIVOCAL THE SEQUEL – Listahátíð í Reykjavík 2010

Katrín Elvarsdóttir
13. maí – 26. júní 2010

Á Listahátíð í Reykjavík 2010 sýndi Katrín Elvarsdóttir ný ljósmyndaverk í Gallerí Ágúst.  Sýningin Equivocal the Sequel samanstendur af röð ljósmynda sem Katrín hefur unnið að síðastliðin 3 ár. Nýju verkin eru sjálfstætt framhald af verkum sem sýnd voru á sýningunni Equivocal í Gallerí Ágúst árið 2008, en sú sýning var tilnefnd til hinna virtu verðlauna The Deutsche Börse Photographic Prize. Á sýningunni Equivocal the Sequel gerir Katrín tilraun til að láta eigin upplifun og reynslu úr fortíð og nútíð renna saman. Fléttar hún þar saman ímynduðu umhverfi við raunveruleikann og gefur í skyn atburðarás sem höfðar ekki síður til undirmeðvitundarinnar en til vitsmuna og skynsemi. Þessi nálgun við frásögnina er undirstrikuð af nákvæmu vali á myndefni ásamt markvissri notkun á endurteknum formum og litum. Á næstu mánuðum er væntanleg vegleg bók með öllum verkunum í ljósmyndaröðinni Equivocal.

Katrín Elvarsdóttir (f.1964) er einn af fremstu samtímaljósmyndurum Íslands. Hún lauk tveggja ára ljósmyndanámi við Brevard Community College í Bandaríkjunum árið 1990 og BFA-gráðu í ljósmyndun og myndlist frá Art Institute of Boston árið 1993. Í verkum sínum nær Katrín gjarnan að framkalla dularfulla og jafnvel leikræna stemningu með hárfínni næmni við að fanga margræð augnablik. Hún hefur haldið einkasýningar á verkum sínum bæði á Íslandi, í Bandaríkjunum og Danmörku og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum víða um heim. Nýverið lauk einkasýningu hennar í D-sal Listasafns Reykjavíkur, þar sem hún sýndi innsetninguna Hvergiland. Hún hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir list sína, s.s. tilnefningu til heiðursverðlauna Myndstefs 2007 og fyrstu verðlaun á sýningunni Camera Works í BNA 2009. Verk eftir Katrínu eru í eigu helstu safna hérlendis. Katrín Elvarsdóttir býr og starfar í Reykjavík.