Davíð Örn Halldórsson
6. nóvember – 23. desember, 2010
Davíð Örn Halldórsson opnaði einkasýningu sína, FAUNALITIR, laugardaginn 6. nóvember í Gallerí Ágúst. Davíð Örn hefur áður sýnt í galleríinu, í byrjun árs 2008 með sýningunni Absalút gamall kastale. Sú sýning sló í gegn og fékk gríðarlega mikla athygli.
Davíð Örn Halldórsson útskrifaðist frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2002. Hann hefur haldið fjölda sýninga og á að baki stuttan en óvenju kröftugan feril. Á meðal sýninga má nefna; Væmin natúr og dreki í 101 projects 2009, Absalút gamall kastale í Gallerí Ágúst í Reykjavík 2008, QuadroPop í Safni, Sjáðu alla grænu fokkana í Banananas Gallerí í Reykjavík og samsýningarnar; The Saga Spirit Alive í Trygve Lie Gallery í New York 2007, Hérna í Hangart-7 í Salzburg 2007, Nói át- No way out í Nýlistasafninu í Reykjavík 2007, Pakkhús Postulanna í Listasafni Reykjavíkur; Hafnarhúsi 2006, Grasrót í Nýlistasafninu í Reykjavík 2005, og í Dalsåsen í Noregi 2004, þar sem Davíð Örn dvaldi í gestavinnustofu fyrir listamenn. Af öðrum verkefnum má nefna að Davíð hefur kennt í Myndlistaskóla Reykjavíkur, á barna og unglingastigi, verið ráðgjafi fyrir útskriftarnema í Listaháskóla Íslands og verðið með opnar vinnustofur á vegum Listasafns Reykjavíkur og Félags framhaldsskólanna. Davíð hannaði plötuumslög fyrir hljómsveitina Múm, bæði smáskífu og breiðskífu, sem komu út sumarið 2009. Auk þess hannaði hann umslag fyrir hljómsveitina Hjálma sem kom út fyrir jól sama ár. Báðar hljómsveitir notuðu einnig myndskreytingar eftir Davíð fyrir ýmsan söluvarning, s.s. veggspjöld og boli. Þá hannaði hann bol fyrir hljómsveitina Hjaltalín þar sem hann endurgerði listaverk eftir Eggert Pétursson fyrir plötuumslag sömu hljómsveitar. Á árinu 2009 kom út bókin Ofhlæði/Overhload sem fjallar um myndlist Davíðs. Í bókinni eru myndir af verkum og viðtal sem Markús Þór Andrésson tók við listamanninn auk texta eftir rithöfundinn Sjón. Bókin var gefin út af bókaútgáfunni Ókeibæ, á íslensku og ensku. Davíð Örn Halldórsson hefur vakið athygli fyrir málverk sem einkennast af kraftmikilli notkun lita og spennandi samruna forma og frásagnarkennds fantasíuheims. Hann hefur unnið bæði málverk og rýmisverk sem hafa sterka skýrskotun til graffítíverka en falla á einstæða hátt að myndlistarhefðinni um leið og þau vísa sterkt í götulistina. Davíð Örn notar fundið efni; málar með skipalakki, spreyjar með úðabrúsalakki og teiknar með tússi á fundnar tréplötur, pappa eða beint á veggi, auk þess að nota litrík límbönd og efnisbúta.
- Madame Bucket, 2010
- Rallylínur, 2010
- Listamaður við vinnu.
- Opnun sýningarinnar Faunalitir
- Opnun 6. nóvember 2010
- Opnun 6. nóvember 2010
- FAUNALITIR
- FAUNALITIR
- FAUNALITIR
- FAUNALITIR
- FAUNALITIR
- FAUNALITIR
- FAUNALITIR
- FAUNALITIR
- FAUNALITIR
- FAUNALITIR
- HóstHost(Batman), 2010
- Tired
- Hangandi



















