HAUSTSÝNING 2009

22. ágúst -10. október, 2009

Í ágúst 2009 fagnaði Gallerí Ágúst 2ja ára starfsafmæli sínu en fyrsta sýningin opnaði í galleríinu 11. ágúst 2007. Til þess að marka upphaf þriðja starfsársins opnaði samsýning fimm listamanna laugardaginn 22. ágúst. Listamannahópurinn er fjölbreyttur og verkin sýna vel þá breidd og ferskleika sem einkennt hefur dagskrá gallerísins. Hér eru á ferðinni ungir sem þroskaðir myndlistarmenn af báðum kynjum og hafa fjögur þeirra sýnt áður hjá Gallerí Ágúst en nú verða sýnd í fyrsta skipti málverk eftir hinn japanska Hiroyuki Nakamura.

Sýningin samanstendur af nýjum listaverkum sem unnin eru í ýmsa miðla, svo sem málverk á striga, áli og tréplötum, ljósmynd og veggverk sem unnið er beint á vegg gallerísins. Áherslan á Haustsýningu Gallerís Ágústs er á glæný og fersk listaverk sem sýna framþróun og þrotlausa vinnu listamannanna. Það er einstök ánægja að sýna þá uppbyggingu og sköpunarkraft sem felst í verkunum á sýningunni, en mörg listaverkanna hafa verið sérstaklega gerð fyrir Haustsýninguna. Listamenn á Haustsýningu Gallerís Ágústs eru:

Guðrún Kristjánsdóttir
Hiroyuki Nakamura
Katrín Elvarsdóttir
Marta María Jónsdóttir
Steingrímur Eyfjörð

Nánari upplýsingar um hvern listmann er að finna hér á vefsíðunni undir Listamenn. Allar nánari upplýsingar um verk til sölu og eru veittar með ánægju hjá Gallerí Ágúst.

Viðtal við Sigrúnu Söndru í Morgunblaðinu 20. júlí 2009

Sýningartexti Haustsýningar