16. maí – 27. júní, 2009
Guðrún Gunnarsdóttir opnaði einkasýningu á verkum sínum í Gallerí Ágúst laugardaginn 16 maí, 2009. Guðrún sýnir nýja skúlptúra en hún hefur unnið að myndlist í hátt í 30 ár og hefur sýnt víða um heim. Verk hennar eru í eigu listasafnanna og ýmissa opinberra aðila. Sýningin stendur til laugardagsins 27. júní. Allar nánari upplýsingar um verkin og söluverð fást hjá galleríinu.
Að lesa á milli línanna
Sigrún Sandra Ólafsdóttir
„Every day is a new poem with new letters that become words and end up as a piece of art that is entagled by threads, knots, cuts and enormous joy.“
Guðrún Gunnarsd. Art Textiles of the World: Scandinavia, 2005
Með þræðina í hendi sér hefur Guðrún Gunnarsdóttir þróað list sína. Hún er hvað þekktust fyrir þrívíddarteikningar sínar úr vír, sem hún mótar í höndunum, gjarnan undir áhrifum náttúrunnar. Hún segir sögu hverfandi náttúru í fínlegri flóru úr köldum vír eða kraftmiklum hnyklahnoðum sem svífa um eins og í þyngdarleysi. Hún leikur sér að þrívíddinni, rýminu á milli, hinu ósagða. Skuggum og leyndarmálum. Guðrún tekst nú á við nýjan efnivið, blandar saman náttúrulegum efnum og “ónáttúrulegum”. Hún leyfir vindasömu vori að hrífa sig með og blandar hrosshárum og trjágreinum saman við málm, plast og gúmmí. Hún virkjar þannig vangaveltur áhorfandans um samspil náttúru og tækni auk þess að vekja löngun til að þreifa á verkunum og skoða í návígi. Í hinu ósagða, þess sem lesa má á milli línanna, hvílir líka tilfinning. Tilfinning um fegurð, þess sem bara er. Án yfirborðskenndar, látleysi, bara tilfinning. Hughrif.
„When I think of art I think of beauty. Beauty is the mystery of life. It is not in the eye it is in the mind. In our minds there is awareness of beauty.“
Agnes Martin. Writings. 1991.
- Hnyklahnoð, 2009. Skúlptúr
- Hugverk 9,10. 2009. Skúlptúr
- Opnun sýningar Guðrúnar Gunnarsdóttur HUGHRIF 2009.
- Hugverk 9,2., 2009. Skúlptúr
- Hnyklahnoð, 2009 Skúlptúr. Ljósmynd: Guðmundur Ingólfsson
- Hugverk, 2009. Skúlptúr
- Eilífð. 2006 Skúlptúr. Vír, 170 x 130 cm
- Opnun sýningar Guðrúnar Gunnarsdóttur HUGHRIF.
- Hugverk 9.3. 2009.Skúlptúr
- Hugarfóstur, 2009. Skúlptúr
- Opnun sýningar Guðrúnar Gunnarsdóttur HUGHRIF.
- Hugverk 9.11. 2009 .Skúlptúr
- Hnyklahnoð, 2009. Skúlptúr













