Hinn 29. september 2007 opnaði Hulda Stefánsdóttir sýninguna “hlutlaus. á hreyfingu”. Verkin voru á einkasýningu Huldu í Winnipeg í Kanada fyrr á þessu ári en sýningin kallaðist þar The Neutral: In Motion. Hér setur Hulda verkin í nýtt samhengi í nýju rými. Allar nánari upplýsingar um verk Huldu eru veittar með ánægju í Galleríi Ágústi.
hlutlaus. á hreyfingu
“Uppleyst eins og yfirborð gamallar silfur gelatin filmu. Myndefnið hefur tærst upp svo eftir sitja ólíkir fletir birtu og skugga, rispur og blettir. Skuggar af skuggum og yfirlýst uppleyst brot. Myndin sem eftir stendur er ekki lengur eftirmynd einhvers úr þessum heimi heldur búin til úr eigin hráa tómi.”
September 2007
Hulda Stefánsdóttir
Febrúar 2008
Hulda Stefánsdóttir fékk nýlega viðurkenningu úr Listsjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur en það er sjóður sem myndlistarmaðurinn Erró setti á fót í minningu frænku sinnar. Sjóðnum er ætlað að efla og styrkja listsköpun kvenna. Styrkurinn er veittur árlega og er veittur listakonu sem þykir skara fram úr.
Maí 2008
Hulda Stefánsdóttir er í hópi þeirra íslensku listamanna sem sýndu í Scandinavia House í New York á sýningunni From another shore; Recent Icelandic Art. Sýninging stóð yfir frá 2. maí – 15. ágúst 2007
- 2007 Akrýll á striga / Acrylic on canvas 120 x 120 cm
- 2007 Stafrænt prent á ál / Digital print on aluminium 24.5 x 34.5 cm
- Yfirlit / Overview
- 2007 Yfirlit / Overview



