Í haust mun Marta Jónsdóttir sýna ný verk í Gallerí Ágúst. Hún hefur undanfarið vakið athygli fyrir abstrakt málverk sín, sem hún vinnur bæði á striga og á pappír. Snemma á þessu ári sýndi hún í Listasal Mosfellsbæjar, einkasýningu með málverkum og teikningu og kallaðist sýningin TALIÐ VAR AÐ AUGUN FRAMLEIDDU LJÓS. Marta sýndi á tvímenningssýningunni MÁLVERKASÝNING um vorið 2009 í Gallerí Ágúst, stór akrýl málverk og teikningar sem hún hafði unnið sem myndskreytingu við ljóðabók Sigurbjargar Þrastardóttur.
Málverk hennar hafa vakið athygli fyrir frumleika og þroskaða nálgun. Hún segir sjálf að málverk hennar séu samsett, lagskipt og tákni hvert sinn heim. Línur og form tengist og hangi á bláþræði. Það þurfi einungis veikan gust til að allt springi í loft upp.
Marta M. Jónsdóttir – Marta María Jónsdóttir
- Án titils / Untitled 2009 Akrýll á pappír / Acrylic on paper
- Talið var að augun framleiddu ljós 2009 Yfirlit / Installation view Frá sýningu Mörtu Jónsdóttur í Listasal Mosfellsbæjar. From Marta's exhibition in Listasalur Mosfellsbae.
- Án titils / Untitled 2009
- Án titils / Untitled 2009 Málverk / Painting