PAINTING SITE

Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir

3. júlí – 24. júlí 2010

Í sumar spratt upp í Gallerí Ágúst einstaklega spennandi sýning ungrar listakonu, Ingunnar Fjólu Ingþórsdóttur. Hún setti upp innsetninguna Painting Site, sem hefur áður verið sýnd í Cuxhavener Kunstverein í Þýskalandi. Verkið var flutt hingað til Íslands og gafst kostur á að njóta þess í júlímánuði í Gallerí Ágúst.

Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir (f. 1976) útskrifaðist úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2007, en hafði áður lokið B.A. prófi í listasögu frá Háskólanum í Árósum. Frá útskrift hefur Ingunn Fjóla unnið markvisst að myndlist sinni og tekið þátt í fjölmörgum sýningum, bæði hérlendis og erlendis. Ingunn Fjóla hefur vakið athygli m.a. fyrir rýmistengd verk sín og skemmst er að minnast innsetningar hennar Ljósbrot sem sýnd var í Hafnarborg fyrr á þessu ári og vakti mikla athygli. Ingunn er einnig annar helmingur tvíeykisins Hugsteypunnar, sem tekur nýlega þátt í sýningunni Að þekkjast þekkinguna í Listasafni Árnesinga í Hveragerði.