SHARP

Andra Maack opnaði hinn 4. júlí aðra einkasýningu sína í Gallerí Ágúst sem ber heitið SHARP by ANDREA MAACK. Andrea var valin til að sýna á tískutvíæringnum í Arnhem og stjórna vinnustofu (workshop) fyrir fatahönnuði hvaðnæva úr heiminum. Afrakstur þeirrar vinnu er til sýnis á tvíæringnum, sem stendur til 6. júlí. Á stuttri sýningu í Gallerí Ágúst fá gestir að kynnast þriðja ilmi Andreu sem vakti mikla athygli í Hollandi og ber að sjálfsögðu heitið SHARP.

Sýningin í Gallerí Ágúst er haldin af tilefni þátttöku Andreu í tískutvíæringnum í Arnhem og stendur yfir í 3 vikur. Á sýningunni mun Andrea fyrst og fremst kynna hinn nýja SHARP ilm á Íslandi og verk með tilvísunum í vinnu hennar fyrir Armhem Mode Biennale og þá sérstöðu að vinna sem myndlistarmaður inni í heimi tískunnar. Andrea vinnur með hefðir tískuiðnaðarins m.a. með því að kynna verkin sín tvisvar á ári (haustlínu og vorlínu) og nota eigið nafn sem n.k. vörumerki. Sýningin samanstendur af innsetningu sem unnin er í samvinnu við innanhúsarkitektinn Ingibjörgu Agnesi Jónsdóttur og grafíska hönnuðinn Ármann Agnarsson ásamt ilminum SHARP sem unnin var í samstarfi við Apf í Frakklandi fyrir Arnhem Mode Biennale 2009.