Um Gallerí Ágúst
Gallerí Ágúst er myndlistargallerí með áherslu á samtímamyndlist sem kynnir og selur myndlist eftir íslenska sem erlenda listamenn. Með auknum áhuga á myndlist skapast þörf fyrir faglega ráðgjöf og aðstoð varðandi val og kaup á myndlist, bæði fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Gallerí Ágúst opnaði árið 2007 og hefur síðan sett upp metnaðarfullar sýningar og tekið þátt í Listahátíð í Reykjavík árið 2008 og 2010 og Sequences Real Time Arts Festival 2007. Gallerí Ágúst er þægilega staðsett í miðbænum á Baldursgötu 12 (Nönnugötumegin) beint fyrir neðan veitingastaðinn Þrjá Frakka. Gallerí Ágúst er í samstarfi við Reykjavíkurborg.
f.h. Gallerís Ágústs
Sigrún Sandra Ólafsdóttir
Baldursgötu 12
101 Reykjavík
Símar: 578 2100 / 869 2013
Netfang: art@galleriagust.is
Opið: Föstudaga til sunnudag milli klukkan 13.00 – 17.00 og eftir samkomulagi.


